Afturábak eða áfram!

Stundum veð ég áfram og ætla að gleypa allan heiminn...

Getur verið gott að því leyti að maður kynnist mikið af frábæru fólki, en hef líka rekið mig á að oft vill það verða að maður verður einnig fyrir særindum. Getur verið af minni hálfu eða annarra sem verða á minni leið.

Ég er samt á því að það er betra að taka áhættu og hleypa fólki inn í líf sitt heldur en að hafa lok lok og lás og einangra sig fyrir umheiminum, spurning samt um að læra að tileinka sér líka að staldra við og njóta líðandi stundar og þeirra vina og ástvina sem maður á nú þegar!

Komst að því að ég er nýkomin í sumarfrí en var búin að skipuleggja allann mánuðinn, spurning hvort ég sé með JÁ syndrome......ætla að slaufa sumum af þessum plönum og reyna að vera í fríi þennan mánuðinn.

Over and out með plön um sól og gleði  ;)


Syngjandi stelpurokk....

Var að keyra heim af næturvakt og þýska lagið var spilað í útvarpinu, ég fékk svona á tilfinninguna að þetta væri hin fræga Leoncie okkar að syngja, svo er náttúrulega fyndið með euróvision að við elskum og hötum keppnina, maður hlustar varla á þetta en samt sem áður fara sko allir í Euróvision partý, held þetta sé svona nostalgíufílingur síðan allir sátu límdir yfir GLEÐIBANKANUM og fengum svo afhroð!! en það var auðvitað algert bull, við áttum að vinna!

Ég og Sunnsó kíktum hérna yfir til grannalings og hlustuðum á löginn, ég var viss um að Frakkland myndi taka þetta en hmmm hmm svo varð ekki, Mér finnst að við ættum að senda Todmobil næst, viss um að þau hefðu sko rúllað þessu upp ;)


búin og byrjuð.....

Jæja búin að ná prófum, er að fara skila tveimur ritgerðum, byrjaði í sumarskóla í dag og sumarfrí að detta inn húff......

Alltaf verið að tala um nýsköpun og frumkvöðla, er að spá í að markaðsetja sjálfsaga!Hversu mikið brill væri það, fara í 10-11 og versla sér sjálfsaga, dag, viku eða mánuð og so on. Ég er bjartsýn að eðlisfari, vinnusöm held ég og metnaðarfull, vantar bara stundum AGA! Spurning um að útfæra og vinna með þetta ;)

Annars líst mér vel á sumarið. Verð fótboltamamman á hliðarlínunni (þessi óþolandi, barnið mitt er sko best! ) ætla skella Gillanum á listanámskeið. Einhver GARÚN!!! hehe var búin að tala um myndlistardaga hmmm..... og Sunnsó verður á fullu í ballet og dansi, fyrir utan það að við ætlum auðvitað að ferðast um landið, skemmta okkur með vinum, vinna í Lottó og bara meika það feitt.

 


Dúúús & Dónts, hmmm

Nú þegar sumarið er komið, þá eiga hlutirnir að gerast!

Ég á ógó duglega vinkonu sem ég er mega stolt af, hætt að reykja og búin að breyta um mataræði. Þá kemur að mig langar svakalega að vera svona dugleg og healthy!

ég get staðist allt nema freistingar, held þetta sé eftir Oscar Wilde, en eru reykingar freistingar eða bara vibba-vani? og að borða sukk, hrikalega gott meðan maður slufrar þessu í sig en kemur í bakið á manni þegar maður er með meltingartruflanir dauðans grrr

Hreyfing pottþétt góð en það er bara svo erfitt að koma sér af stað, spurning um leikjanámskeið fyrir fullorðna, brennó, trampolín, París osv.frv.

en svo svona gullkorn í restina litli kúturinn minn tilkynnti mér um daginn að hann hefði fæðst í útlöndum, ég neitaði því auðvitað og sagði honum að hann hefði fæðst á Íslandi. En út af hverju tala ég þá betri útlensku en Gísli mamma? (nota bene þá talar hann ronnsa, ponnsa ensku )


Próflok!

Snilldardagur í gær, Var vakin af honum Halla p.....tryllir eins og hann kallar sig. Mætti ofur hress kl 7:30 en eins og þeir sem þekkja mig vita finnst mér alveg ágætt að sofa út zzzzzzzz. Fórum í Virkjun að læra aðeins þar sem ég var að fara í mitt síðasta próf, fannst nú samt eins og ég væri mjög illa undirbúin en hittum þar þetta frábæra fólk sem hefur verið síðustu vikur. Snilldin eina var að nú var dama í eldri borgara billiard hópnum, fyrsta skipti sem ég sé það og lét það auðvitað flakka við þau Whistling við góðar undirtektir hjá henni allavegana haha. Brunaði svo í HÍ í prófið og held ég hafi bara massað þetta, sko mig! Fór beint í vinnu eftir það og fékk að hoppa á trampolíni með krökkunum (langaði petite að henda þeim út af og vera bara ein ) svo voru grillborgarar og kósý, enn og aftur TRAMPOLÍN, semsagt gleði gleði dagur.

ÉgHeart sumarið 


Pæling!

Hvað er fjölskylda?Hvers vegna skilgreinum við suma hópa sem fjölskyldur og aðra ekki? 

*Fjölskylda = skylda við marga. Börn gagnvart fullorðnum og fullorðnir gagnvart börnum. Umhyggjuskylda foreldra gagnvart börnum og öfugt ef að foreldrar eru ófærir um að sjá um sig sjálfir.

 

*Fá-skylda = eina sem heldur fólki saman er ást og innileiki.

Þetta er úr einum kúrsinum mínum. Ég er heppin og á frábæra og stóra fjölskyldu en þetta með Fá-skyldu festist í hausnum á mér, algerlega brilliant!

Kata vinkona og Kiddi myndu pottþétt lenda þarna og helling af öðru fólki InLove

Ég held að ég eigi risastóra fá-skyldu.

Þetta er sko nýjasta uppáhaldsorðið mitt


Sumarið er tíminn

Sumarið er tíminn
þegar hjartað verður grænt
og augu þín verða
himinblá, ójá

Sumarið er tíminn 
þegar ég ætla gera svo margt                                                   
Ferðast með vinum                                                                 byrja að æfa, synda og syngja                                                 grilla og gleðjast ójá
                                         

 Sumarið er tíminn
þegar kvenfólk springur út
og þær ilma
af dulúð og sól, ójá

Grin


Murder she wrote!

Bara high on life þessa stundina. Hitti strákana mína á Lyngmóanum um helgina, spjallaði helling við Sigga og Frikka og fékk heimsins besta knús frá honum Ómsa, ótrúlegt hvað sumir gefa bara bestu knús í heimi Tounge langar að ættleiða kappann, væri færibandaknús allan daginn mmm....

Fór í kaffi til hennar Maríu minnar, var ágætlega dugleg í lærdómnum og um kvöldið fór ég með góðu fólki á morð ráðgátu í Höfnum. Lifandi leikrit sem maður tekur þátt í, fær að kommenta og reyna geta hver er morðinginn, flott koncept. Ungir, upprennandi leikarar þar á ferð undir stjórn Garúnar sem er alger sKnillingur!

Eftir þessa snilld tók ég kjaftatörn með henni Kötu minni (sálufélaganum) non-stop í 3 klukkutíma, lenti svo aftur á kjaftatörn með henni Guðrúnu þegar ég var komin heim, sem sagt vakað frameftir öllu en nú er ég farin að dreyma um sumarið InLove, , bara gleði og grill framundan yeyhhhh


Prófatími

Jæja þá er geðveikistímabilið byrjað!

Maður lokar sig af og einsetur sér að læra hmm...

gengur misvel, vinna, börn, vinir og fésbókin. Ok hætta fésbókarruglinu, biðja pabbann um að eiga börnin um tíma, tilkynna vinunum að maður verði fjarverandi þangað til eftir próf og verða smá einhverfur, vandamálið er bara að ég er alltof mikil félagsvera, elska að vera í kringum fólk, hlægja og hafa gaman, já og á erfitt með að halda einbeitingu í langan tíma í einu, held að ég þurfi einhvern með Hitler syndrome til að standa yfir mérWhistling

Og stórann latte!


Höfundur

Eyrún Ösp Ingólfsdóttir
Eyrún Ösp Ingólfsdóttir

Er enn að þroskast og læra. Reyni að njóta lífsins eftir fremsta megni og er svo heppin að vera umkringd frábæru fólki  

Vertu ánægður með þetta augnablik, því þetta augnablik er líf þitt!

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband